Giggs með nýjan samning

Ryan Giggs. stækka

Ryan Giggs. Reuters

Manchester United tilkynnti á vef sínum fyrir stundu að Ryan Giggs hefði framlengt samning sinn við félagið um eitt ár og yrði því áfram leikmaður þess tímabilið 2012-2013.

Giggs er 38 ára gamall en leikur enn talsvert hlutverk í liði United. Hann hefur þegar spilað 22 leiki á þessu tímabili og samtals 898 leiki fyrir félagið á ferlinum. Þá hefur Giggs skorað þrjú mörk fyrir United í vetur.

„Þegar ég skrifaði undir minn fyrsta samning sá ég aldrei fyrir mér að ég myndi geta spilað með United í 22 ár. En mér líður vel og ég veit að ég get enn hjálpað liðinu í baráttu sinni fyrir titlum. Það var frábær tilfinning að taka þátt í að landa 19. meistaratitlinum í fyrra en í þessu félagi snýst allt um það sem framundan er og ég er mjög ánægður með að geta tekið þátt í því,“ er haft eftir Giggs á vef United.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is