Grétar tilbúinn í fallslaginn

Grétar Rafn Steinsson. stækka

Grétar Rafn Steinsson. Reuters

Grétar Rafn Steinsson hefur náð sér af meiðslum í læri og getur spilað með Bolton á morgun þegar liðið mætir nágrönnunum í Wigan í miklum fallslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Grétar missti af leik Bolton gegn Norwich um síðustu helgi en Owen Coyle knattspyrnustjóri segir að hann sé orðinn leikfær.

Þrír aðrir geta komið inní lið Bolton. Marvin Sordell, framherji enska 21-árs landsliðsins sem var keyptur frá Watford í janúar, hefur jafnað sig af höfuðmeiðslum og Tim Ream, sem kom frá Bandaríkjunum og Ryo Miyaichi, sem kom í láni frá Arsenal, gætu báðir spilað sinn fyrsta leik.

Bæði liðin eru í fallsæti en Bolton er í 18. sætinu með 20 stig og Wigan í 20. og neðsta sæti með 16 stig. QPR og Wolves eru bæði stigi fyrir ofan Bolton sem á því góða möguleika á að komast úr fallsætinu með sigri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is