Wenger: Synd að missa Henry
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sér mikið eftir Thierry Henry sem þarf að snúa aftur til New York Red Bulls 17. febrúar eftir lánsdvölina í London en hún fékkst ekki framlengd.
„Það hefði verið virkilega gott að halda Thierry hjá okkur tveimur vikum lengur en hann verður að fara. Gagnvart New York er það bara sanngjarnt. En ég hef undanfarið séð til hans þvílíka hluti á æfingum hjá okkur að það er mikil synd að hann skuli ekki ennþá spila með franska landsliðinu,“ sagði Wenger á fréttamannafundi sínum í morgun.
Þar fór Wenger jafnframt yfir stöðu mála hjá sínu liði og sagði engin afföll hafa orðið í leikmannahópnum frá því um síðustu helgi. Flestir væru orðnir heilir og hann myndi ná að stilla upp næstum því sínu sterkasta liði gegn Sunderland á morgun en liðin mætast þá á Leikvangi ljóssins í úrvalsdeildinni.






