Aron Einar: Meiðslin vonandi ekki alvarleg
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.isAron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff, fór meiddur af velli á 7. mínútu gegn Leicester í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Aron sagði í samtali við mbl.is að meiðslin væru líklega ekki alvarleg en það kæmi þó betur í ljós á morgun.
„Ég tognaði aðeins aftan í rassvöðvanum, þetta er ekkert slæmt heldur fór ég út af til öryggis. Það er æfing í fyrramálið og þá kemur það betur í ljós eftir meðhöndlun þar, þetta er vonandi ekkert alvarlegt,“ sagði Aron Einar en Cardiff tapaði 2:1.
Það eru mikilvægir leikir framundan hjá Aroni í deildinni og einnig í deildabikarnum þar sem liðið mætir Liverpool 26. febrúar í úrslitum á Wembley. „Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að missa af leiknum gegn Liverpool eins og staðan er núna. Maður bíður auðvitað bara og vonar það besta. Ég er líka þannig að ég myndi spila á Wembley þrátt fyrir smá tognun,“ sagði harðjaxlinn jafnframt.
Deildin mikilvægari en bikarinn
Aron Einar vonast til að vera klár í slaginn eftir viku gegn Ipswich en liðið á einnig leik á þriðjudaginn. Cardiff þarf að halda áfram að safna stigum enda í baráttu um sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Cardiff hefur hinsvegar aðeins fengið eitt stig út úr síðustu þremur leikjum eða frá því liðið vann Crystal Palace í undanúrslitum deildabikarsins. „Það er búin að vera einhver skrekkur í okkur og þetta ekki gengið nógu vel síðan eftir leikinn gegn Palace. Við þurfum að koma okkur í gang svo liðin í kringum okkur fari ekki alltof langt fram úr okkur. Deildin er okkur auðvitað mikilvægari en bikarinn.“






