Evra og Suárez - myndasyrpa

Patrice Evra fagnar um leið og Luis Suárez gengur framhjá honum og af velli í ... stækka

Patrice Evra fagnar um leið og Luis Suárez gengur framhjá honum og af velli í leikslok í dag. AP

Rækilega var fylgst með Patrice Evra og Luis Suárez í leik Manchester United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, og það var svo sem engin furða eftir það sem á undan var gengið.

Suárez tók ekki í hönd Evra fyrir leikinn. Í leikslok fagnaði Evra 2:1 sigri United ógurlega fyrir framan Suárez, svo mjög að Phil Dowd dómari þurfti að grípa inn í.

Í meðfylgjandi myndasyrpu frá leiknum má sjá þá Evra og Suárez fyrir leik, í leiknum og að honum loknum. Syrpuna er líka hægt að skoða betur, og með enskum skýringatextum, í renningnum á íþróttavefnum og á forsíðu mbl.is:

Myndasyrpa: Evra og Suárez

Patrice Evra og Luis Suárez mættust með liðum Manchester United og Liverpool 11. febrúar, í fyrsta sinn eftir meint kynþáttaníð Suárez í garð Evra í október.

Birtingardagur: Laugardaginn, 11. febrúar 2012

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is