Ferdinand: Missti alla virðingu fyrir Suárez
Rio Ferdinand, miðvörður Englandsmeistara Manchester United, segist hafa misst alla virðingu fyrir Luis Suárez, framherja Liverpool, þegar hann var spurður að því hvers vegna hann hefði neitað að taka í hönd Úrúgvæans fyrir leik United og Liverpool í dag.
„Mér fannst þetta vera dapurleg ákvörðun hjá honum,“ sagði Ferdinand við MUTV-sjónvarpsstöðina en Ferdinand ákvað að taka ekki í hönd Suárez eftir að Úrúgvæinn neitaði að taka í höndina á Patrice Evra.
„Eftir að hafa séð hann neita að taka í höndina á Evra ákvað ég að sleppa því að rétta honum höndina. Hann fékk ekki þá virðingu sem hann þurfti á að halda í þessari stöðu og að viðurkenna að hann gerði mistök og biðjast afsökunar. Ég tapaði allri virðingu fyrir honum eftir þetta.“
Gríðarlega margir hafa viðrað skoðun sína á uppákomunni fyrir leikinn og eru flestir sammála um að Suárez hafi hagað sér heimskulega með því að neita að taka í hönd Evra.






