Ferguson: Af hverju áfrýjaði Liverpool ekki?

Sir Alex og Kenny Dalglish. stækka

Sir Alex og Kenny Dalglish. Reuters

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, vill vita hvers vegna Liverpool áfrýjaði ekki úrskurði aganefndar enska knattspyrnusambandsins um átta leikja bann Úrúgvæans Luis Suárez ef það álítur hann saklausan.

Það hefur gætt pirrings í herbúðum Manchester United í þessari viku eftir stuðningsyfirlýsingu Liverpool gagnvart Suárez sem var fundinn sekur um kynþáttarníð í garð Patrice Evra.

,,Af hverju áfrýjaði Liverpool ekki?“ sagði Ferguson við fréttamenn í gær en Suárez og Evra mætast inni á vellinum í hádeginu í dag þegar United fær Liverpool í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool ákvað að hlíta úrskurði aganefndar enska knattspyrnusambandsins og í vikunni lét Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, hafa eftir sér að Suárez hefði aldrei átt að fá bann og þyrfti ekki að biðjast afsökunar.

„Liverpool hefur sagt margt um þetta er það ekki? Við höfum hins vegar haldið ótrauðir áfram og haldið reisn í gegnum þetta og við viljum bara einbeita okkur að fótboltanum,“ sagði Ferguson en hans menn töpuðu fyrir Liverpool í bikarkeppninni á Anfield fyrir hálfum mánuði þar sem Evra fékk að heyra það frá stuðningsmönnum Liverpool.

,,Patrice hefur tekið vel á þessu. Ég held að honum hafi ekki verið skemmt að heyra svívirðingarnar sem hann fékk á Anfield en þetta gerist. Gary Neville fékk þennan skammt í 15 ár og Wayne Rooney fær að heyra það þegar hann leikur gegn Liverpool. Við reiknuðum því með þessu og það gerði Patrice líka en hann afgreiddi þetta vel. “

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is