Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 11.2.2012
| 15:25
| Uppfært
12.2.2012
20:29
Ferguson: Liverpool ætti ekki að leyfa Suárez að spila
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var ekki ánægður með þá ákvörðun Luis Suárez að vilja ekki taka í höndina á Patrice Evra fyrir leikinn gegn Liverpool í dag.
„Ég trúði því ekki að Suárez hefði neitað að taka í höndina á Evra. Suárez var með þessu Liverpool til skammar og það ætti ekki að leyfa honum að spila aftur. Hann hefði getað hleypt af stað uppþoti. Rasismi er mikilvægt mál og það er langt síðan bönunum var kastað í John Barnes. Evra hefði ekki átt að fagna sigrinum fyrir framan Suárez. Hann hefði ekki átt að gera það,“ sagði Ferguson.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







