Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 11.2.2012
| 16:11
| Uppfært
12.2.2012
19:30
Rooney: Draumur að skora á móti Liverpool
„Mér finnst ég hafa spilað vel á móti Liverpool í gegnum tíðina. Það er draumur að skora á móti Liverpool og við vissum að fyrsta markið í leiknum myndi verða mikilvægt,“ sagði Wayne Rooney, framherji Manchester United, eftir sigurinn á móti Liverpool í dag.
Rooney skoraði bæði mörk Manchester United í leiknum og hefur þar með skorað 17 mörk í deildinni og 22 mörk í öllum keppnum fyrir Manchester-liðið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






