Rooney skaut United á toppinn

Wayne Rooney fagnar fyrra marki sínu. stækka

Wayne Rooney fagnar fyrra marki sínu. AP

Manchester United var að komast á topp ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2:1 sigur á erkifjendum sínum í Liverpool á Old Trafford. Það var Wayne Rooney sem skaut United í toppsætið en hann skoraði bæði mörk Englandsmeistaranna áður en Luis Suárez minnkaði muninn á lokamínútum leiksins.

90+3 Leiknum er lokið með sigri Manchester United, 2:1. United er stigi á undan Manchester City sem mætir Aston Villa á útivelli á morgun.

90. Glen Johnson átti þrumuskot sem De Gea gerði vel í að slá boltann yfir.

79. MARK!! Liverpool er að minnka muninn. Luis Suárez fékk boltann óvænt fyrir í markteignum eftir aukaspyrnu og hann minnkaði muninn í 2:1. Þetta mark kom eins og þruma úr heiðskíru lofti enda var ekkert að gerast fram á við hjá leikmönnum Liverpool. Nú er spurning hvernig liðin bregðast við.

60. Tvöföld skipting hjá Liverpool. Downing og Spearing fara af velli og inn á í þeirra stað eru komnir litli og stóri, Bellamy og Carroll.

59. Rooney fékk upplagt tækifæri til að fullkomna þrennuna en skot hans með stóru tánni fór framhjá. Leikmenn Liverpool eru í hálfgerðu losti eftir þessa byrjun United í seinni hálfleik.

50. MARK!! Rooney var að koma Englandsmeisturunum í 2:0. Hann fékk sendingu inn fyrir vörnina frá Welbeck og setti boltann á milli fóta Reina. Þvílík óskabyrjun hjá United í seinni hálfleik. Það liðu 2 mínútur og 48 sekúndur á milli markanna hjá Rooney.

47. MARK!! Wayne Rooney er búinn að koma United yfir, 1:0. Giggs tók hornspyrnu og boltinn endaði fyrir framan fætur Rooneys sem hamraði boltanum í netið af stuttu færi.

46. Seinni hálfleikur er hafinn á Old Trafford. Engar breytingar voru gerðar á liðunum.

45. Margir hafa tjáð sig á Twitter um þá ákvörðun Suárez að neita að taka í höndina. Flestir eru sammála um að Úrúgvæinn hafi hagað sér heimskulega með þessu athæfi sínu.

45. Það urðu einhver vandræði í göngunum þegar leikmenn voru að ganga til búningsherbergja í hálfleiknum. Evra reyndi að ná tali af Suárez en Martin Skrel blandaði sér í málið og síðan vallarstarfsmenn og lögregla. Það tók leikmennina fimm mínútur að komast inn í klefa.

45. Hálfleikur á Old Trafford. Staðan er 0:0. Leikurinn hefur ekki náð neinu flugi en Paul Scholes fékk besta færið þegar hann skallaði af markteig beint í fangið á Pepe Reina. Það er stuttur þráðurinn í Luis Suárez og hann verður að fara að gæta sín.

30. Paul Scholes fékk dauðafæri en eftir sendingu frá Ryan Giggs fékk Scholes frían skalla frá markteig en boltinn fór beint á Pepe Reina. Langbesta færi leiksins.

23. Fyrri hálfleikurinn er hálfnaður og það hefur fátt markvert gerst. Liðin eru bæði að þreifa fyrir sér.

10. Bakvörðurinn Glen Johnson var hársbreidd frá því að koma Liverpool yfir en skot hans með vinstri fæti fór hárfínt framhjá markinu.

1. Leikurinn er hafinn á Old Trafford og vonandi verður mikið fjör.

0. Það er strax byrjað að hitna í kolunum. Luis Suárez tók ekki í höndina á Patrice Evra sem var furðu lostinn yfir ákvörðun Úrugvæans.

0. Liverpool er í 7. sæti deildarinnar en takist liðinu að vinna kemst það upp að hlið Newcastle í fimmta sætið.

0. Með sigri kemst Manchester United í toppsætið um stundarsakir að minnsta kosti en Manchester City sem er með tveimur stigum meira en United mætir Aston Villa á útivelli á morgun.

0. Liðin skildu jöfn, 1:1, í fyrri leiknum á Anfield en liðin áttust svo í bikarnum fyrir hálfum mánuði og þá fagnaði Liverpool sigri, 2:1.

0. Luis Suárez er í byrjunarliði Liverpool og þar með mætast „vinirnir“ Suárez og Patrice Evra í fyrsta sinn síðan eftir uppákomuna í fyrri leiknum sem dró heldur betur dilk á eftir sér. Suárez var úrskurður í átta leikja bann.

0. Ashley Young er ekki í leikmannahópi United og er líklegt að kantmaðurinn knái eigi við meiðsli að stríða.

Lið Man Utd: De Gea, Rafael, Evans, Rio, Evra, Valencia, Carrick, Scholes, Giggs, Welbeck, Rooney. Varamenn: Amos, Cleverley, Berbatov, Park, Hernandez, Pogba.

Lið Liverpool: Reina, Enrique, Johnson, Agger, Skrtel, Spearing, Gerrard, Henderson, Downing, Kuyt, Suarez. Varamenn: Doni, Carragher, Bellamy, Carroll, Adam, Shelvey, Kelly.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is