Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 11.2.2012
| 11:06
| Uppfært
12.2.2012
21:27
Stórleikur á Old Trafford - Átta leikir í dag
Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Stórleikur dagsins verður á Old Trafford þar sem erkifjendurnir Manchester United og Liverpool eigast við og er leiksins beðið með mikilli eftirvæntingu þar sem Luis Suárez og Patrice Evra mætast í fyrsta sinn eftir uppákomu þeirra fyrr í vetur sem endaði með því að Suárez var úrskurðaður í átta leikja bann.
Leikir dagsins eru:
12.45 Manchester United - Liverpool
15.00 Blackburn - QPR
15.00 Bolton - Wigan
15.00 Everton - Chelsea
15.00 Fulham - Stoke
15.00 Sunderland - Arsenal
15.00 Swansea - Norwich
17.30 Tottenham - Newcastle
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






