Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 11.2.2012
| 13:51
| Uppfært
12.2.2012
19:43
Suárez neitar að taka í hönd Evra (myndskeið)
Luis Suárez, leikmaður Liverpool, neitaði að taka í höndina á fyrirliða Manchester United, Patrice Evra, og kippti henni að sér í leik liðanna í dag í ensku úrvalsdeildinni. Það er hálfleikur þegar þetta er skrifað og staðan markalaust.
Suárez er nýlega búinn að klára 8 leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð Evra og greinilegt á myndbandinu hér fyrir neðan að Suárez er ekki sáttur við fyrirliða United. Evra reynir þó hvað hann getur til að taka í höndina á Suárez.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






