Tottenham lék sér að Newcastle
Tottenham mætti Newcastle í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Bæði lið eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og því mátti búast við spennandi leik. Raunin varð hinsvegar allt önnur þar sem Tottenham gjörsigraði lélegt lið Newcastle 5:0.
Louis Saha opnaði meðal annars markareikning sinn hjá Lundúnarliðinu með tveimur mörkum. Maður leiksins var þó án alls vafa Emmanuel Adebayor sem lagði upp fyrstu fjögur mörkin og skoraði svo sjálfur það fimmta.
Tottenham er eftir leikinn með 53 stig, nú 5 stigum á eftir Manchester United sem er í efsta sæti og 4 stigum á eftir Manchester City í 2. sæti sem á þó leik til góða. Newcastle sem gat með sigri farið í 4. sætið er með 42 stig í 6. sæti eftir leiki dagsins.
Fylgst var með gangi mála hér fyrir neðan.
Tottenham - Newcastle, 5:0
(Benoit Assou-Ekotto 4., Louis Saha 6., 20., Kranjcar 34., Adebayor 65. - )
88. Bæði lið eru búin að eiga ágæt færi en Fabricio Coloccini var heppinn að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu þegar hann braut á Jermaine Defoe. Dómarinn ákvað þó að dæma ekkert þrátt fyrir augljósa snertingu.
65. MARK! - 5:0 - Emmanuel Adebayor kórónar frábæran leik sinn í dag með því að skora 5. mark Tottenham. Hann fékk sendingu frá Louis Saha í miðjan vítateiginn og sendi boltann í netið.
45. Það er kominn hálfleikur og er Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, væntanlega feginn að fá tíma til að fara yfir gang sinna manna. Harry Redknapp getur hinsvegar ekki verið annað en ánægður enda leikmenn Tottenham hreinlega farið á kostum og nýtt sér slaka varnartilburði gestanna með því að skora fjögur mörk.
34. MARK! 4:0 - Niko Kranjcar var að bæta við fjórða markinu fyrir Tottenham og auðvitað var það Emmanuel Adebayor sem átti stoðsendinguna. Hann fékk boltann í vítateignum og skaut að marki. Tim Krul náði að verja en boltinn barst aftur til Adebayor sem kom honum á Kranjcar. Hann átti svo ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið enda Krul ekki í jafnvægi eftir fyrra skotið.
20. MARK! - 3:0 - Mörkunum hreinlega rignir inn á White Hart Lane og því miður fyrir Newcastle þá er boltinn alltaf í netinu hjá þeim svartklæddu. Louis Saha var að skora sitt annað mark og það aftur eftir sendingu frá Emmanuel Adebayor, hann búinn að leggja upp öll mörkin. Adebayor fékk sendingu frá vinstri frá Luka Modric sem hann lagði fyrir Saha í teignum. Vörn Newcastle skelfileg svo ekki sé meira sagt!
6. MARK! - 2:0 - Annað mark hjá heimamönnum og nú var það Louis Saha sem Tottenham fékk frá Everton í janúar. Aftur var það Emmanuel Adebayor sem átti fyrirgjöfina. Saha stakk sér framfyrir varnarmenn Newcastle og botaði boltanum í netið úr miðjum vítateignum. Gott mark hjá Saha sem er búinn að opna markareikning sinn með Tottenham.
4. MARK! - 1:0 - Heimamenn í Tottenham voru ekki lengi að skora fyrsta markið. Benoit Assou-Ekotto skoraði úr markteignum einn og óvaldaður eftir góða sendingu frá Emmanuel Adebayor.
1. Boltinn er farinn að rúlla á White Hart Lane í London.
Lið Tottenham: Fridel, Bale, Dawson, King, Walker, Assou-Ekotto, Parker, Modric, Kranjcar, Adebayor, Saha.
Varamenn: Cudicini, Nelson, Khumalo, Lennon, Rose, Livermore, Defoe.
Lið Newcastle: Krul, Coloccini, Santon, Simpson, Williamson, Perch, Guthrie, Guierrez, Obertan, Cisse, Ba.
Varamenn: Elliot, Ferguson, Ben Arfa, Abeid, Gosling, Lovenkrands, Shola Ameobi.







