Villas-Boas: Okkar versta frammistaða
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, sá sína menn spila sinn versta leik á tímabilinu þegar liðið tapaði fyrir góðu liði Everton á Goodison Park í dag. Eftir tapið er Chelsea 15 stigum á eftir toppliði Manchester United og það er farið að hitna undir Portúgalanum í stjórastólnum.
,,Ég held að þetta hafi verið versta frammistaða liðsins á tímabilinu,“ sagði Villas-Boas á Goodison eftir leikinn en á þessum sama velli var Carlo Ancelotti rekinn í fyrra. ,,Það var fátt jákvætt í leik okkar í dag og það eru erfiðir dagar sem við erum að ganga í gegnum. Við tökum með okkur margt neikvætt frá þessum leik,“ sagði Villa-Boas.
,,Sem stendur erum við í fimmta sæti og það er langt í frá nógu gott,“ sagði Portúgalinn sem tók við stjórastöðunni hjá Chelsea fyrir tímabilið.
Fernando Torres var í liði Chelsea og lék sinn 18. leik í röð án þess að skora.






