Wenger fúll út í spænsku pressuna
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sakar spænska fjölmiðla um að reyna að koma fyrirliðanum Robin van Persie úr jafnvægi en síðustu daga hefur Hollendingurinn verið orðaður við spænsku risaliðin Barcelona og Real Madrid.
Van Persie hefur farið á kostum með Arsenal-liðinu og hefur skorað 28 mörk fyrir liðið í öllum keppnum, þar af 22 í úrvaldeildinni. Van Persie hefur ekki gert nýjan langtímasamning en samningur hans við Lundúnaliðið rennur út á næsta ári.
Í grein sem birtist í spænska blaðinu Marca er haft eftir Van Persie að það sé mikill heiður að vera orðaður við Real Marid og hann sé spenntur fyrir því að spila á Spáni.
,,Í sannleika sagt er Marca jafn frjótt og sum ensk dagblöð. Það þýðir að þú getur ekki trúað hverju orði sem stendur í Marca. Blaðamönnum þar er alveg sama. Ég held meira að segja að það sé fjær sannleikanum en blöðin á Englandi. Þeir búa til fréttir,“ segir Wenger.
Hann segir að enginn frá Barcelona né Real Madrid hafi sett sig í samband við Arsenal vegna Van Persie og sjálfur segir Van Persie á Twitter-síðu sinni: ,,Ég hef aldrei rætt við Marca og veitti því ekki viðtal. Hafið það gott í dag,“ skrifar Van Persie.






