Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 12.2.2012
| 18:49
Barry: Gríðarlega mikilvægur sigur
„Allir útileikirnir í ensku koma til með að verða erfiðir svo að koma hingað og taka þrjú stig var gríðarlega mikilvægt,“ sagði miðjumaðurinn Gareth Barry, leikmaður Manchester City, eftir sigurinn gegn Aston Villa á Villa Park en Barry lék um árabil með Aston Villa.
„Manchester United er félag sem hefur unnið marga titla en við erum með lið sem mikil reynsla býr í og í liðinu er leikmenn sem hafa unnið titil í öðrum löndum. Við munum notfæra okkur það til loka leiktíðarinnar,“ sagði Barry.
13 umferðir eru eftir af úrvalsdeildinni og Manchester City með 60 stig, Manchester United hefur 58 og Tottenham 53 en slagurinn um Englandsmeistaratitilinn í ár kemur til með að standa á milli þessara liða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






