Eggert í leik með Úlfunum. Reuters
Eggert Gunnþór Jónsson hefur leik á varamannabekk Wolves en liðið tekur á móti WBA í ensku úrvalsdeildinni og hefst rimma grannliðanna klukkan 13.30. WBA er með 26 stig í 15. sæti deildarinnar en Wolves hefur 21 stig og í 17. sætinu.