Ferguson ætlar að skoða Eriksen
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hlakkar til að sjá danska miðjumanninn Christian Eriksen hjá Ajax þegar United mætir Ajax í Evrópudeildinni í Amsterdam á fimmtudaginn.
Eriksen hefur verið orðaður við mörg af bestu liðum Evrópu og þar á meðal lið Manchester United en hann hefur þótt leika afar vel með danska landsliðinu sem og Ajax.
„Það hefur verið mikil athygli á honum og allir hafa verið að fylgjast með honum. Við munum sjá hvað býr í honum,“ sagði Ferguson við fréttamenn.
Leikur Manchester United og Ajax er í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en öllum á óvart tókst Englandsmeisturunum ekki að vinna sér keppnisréttinn í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
„Við viljum afdráttarlaust vinna þessa keppni og tökum hana alvarlega. Það er frábært að við spilum ekki heima fyrir um næstu helgi og því get ég teflt fram mínu sterkasta liði,“ sagði Ferguson.






