Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 12.2.2012
| 12:11
| Uppfært
18:45
Klinsmann spenntur fyrir Tottenham
Þjóðverjinn Jürgen Klinsmann segist vera áhugasamur um að taka við starfi Harrys Redknapps sem knattspyrnustjóri Tottenham að því er haft er eftir honum í enska blaðinu Sunday Mirror í dag.
Talið er víst að Redknapp taki við þjálfun enska landsliðsins af Fabio Capello en muni stýra Tottenham-liðinu út tímabilið.
Klinsmann er þjálfari bandaríska landsliðsins en hann lék á árum áður með Tottenham liðinu og er enn í guðatölu hjá fjölmörgum stuðningsmönnum Tottenham. Klinsmann gerði góða hluti með þýska landsliðinu en undir hans stjórn varð liðið í þriðja sæti á HM í Þýskalandi árið 2006 en í fyrra tók hann við þjálfun bandaríska landsliðsins. Í millitíðinni var hann þjálfari Bayern München.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






