Odemwingie með þrennu í stórsigri WBA
WBA lék granna sína í Wolves grátt þegar liðin áttust við á Molineux, heimavelli Úlfanna í dag. Strákarnir hans Roys Hodgsons fögnuðu stórsigri, 5:1, og það kemur ekki á óvart ef Mick McCarthy, knattspyrnustjóri Wolves, verður látinn poka sinn en stuðningsmenn sendu honum tóninn í og eftir leikinn í dag.
Nígeríumaðurinn Peter Odemwingie var maður leiksins en þessi 30 ára gamli framherji, sem er fæddur í Rússlandi, skoraði þrennu og þeir Jonas Olsson og Keith Andrews gerðu sitt markið hvor. Steven Flecher skoraði eina mark Úlfanna þegar hann jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks.
Eggert Gunnþór Jónsson sat sem fastast á varamannabekk Wolves allan tímann.
Með sigrinum komst WBA upp í 14. sæti en liðið hefur 29 stig en Úlfarnir eru í 18. sætinu með 21 stig.






