Redknapp: Stórkostleg frammistaða
Harry Redknapp hrósaði liðinu sínu í hástert eftir frábæran 5:0 sigur liðsins gegn Newcastle á White Hart Lane í gærkvöld. Hann hrósaði sérstaklega framherjaparinu Emmanuel Adebayor og Louis Saha en sá síðarnefndi skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik á heimavelli með liðinu en hann kom óvænt að láni frá Everton á dögunum.
„Adeabayor og Saha voru frábærir og frammistaða þeirra í byrjun leiksins kom okkur af stað. Við skoruðum tvö mörk á fyrstu mínútum leiksins og eftir það var engin hætta. Þú vonast eftir byrjun sem þessari en þú getur ekki reiknað með henni. Við vorum undirbúnir fyrir mjög erfiðan leik en liðið spilaði frábæran fótbolta og frammistaða alls liðsins var stórkostleg,“ sagði Redknapp.
Tottenham er í þriðja sæti deildarinnar, 10 stigum á undan Arsenal en 5 stigum á eftir toppliði Manchester United.






