Suárez: Gerði mistök og biðst afsökunar
Úrúgvæinn Luis Suárez, framherji Liverpool, hefur beðist afsökunar fyrir að vilja ekki taka í höndina á Patrice Evra fyrir leik Manchester United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í gær.
„Ég hef rætt við stjórann eftir leikinn á Old Trafford og ég hef áttað mig á því að ég gerði rangt. Ég hef ekki aðeins valdið honum vonbrigðum heldur félaginu og það sem það stendur fyrir og ég biðst afsökunar. Ég gerði mistök og ég sé eftir því sem gerðist.
Ég hefði átt að taka í höndina á Patrice Evra fyrir leikinn og ég vil biðjast afsökunar á gjörðum mínir. Ég vil nú einbeita mér að fótboltanum og leggja þetta mál til hliðar,“ segir Suárez í yfirlýsingu sem er birt á vef Liverpool.
Uppákoman á Old Trafford í gær hefur skapað miklar umræður og flestir eru sammála um að Suárez hafi hagað sér afar heimskulega með því að neita að taka í höndina á Evra.






