United tekur til greina afsökun Liverpool
Englandsmeistarar Manchester United hafa tekið til greina afsökunarbeiði frá Liverpool í kjölfar þess að Úrúgvæinn Luis Suárz neitaði að taka í höndina á Patrice Evra fyrir leik Manchester United og Liverpool á Old Trafford í gær.
Suárez sendi fyrr í dag frá sér yfirlýsingu á vef Liverpool þar sem hann viðurkenndi mistök og baðst afsökunar og það hefur Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, sömuleiðis gert en hann sagði í dag að það hefði komið sér mjög á óvart að Suárez hefði ekki viljað taka í höndina á Evra.
Þá segir Ian Ayre í yfirlýsingu á vef Liverpool að Suárez hafi blekkt félagið en í aðdraganda leiksins hafi hann sagst ætla að taka í höndina á Evra.
„Manchester United þakkar Liverpool fyrir fyrir að biðjast afsökunar á atburðinum í gær og allir á Old Trafford vilja nú taka þetta mál af dagskrá. Saga félaganna beggja er glæsileg og óviðjafnanleg og sýnir mesta árangur og ríg í sögu breska fótboltans. Allir þeir sem elska félögin ættu að einblína á það í framtíðinni,“ segir í yfirlýsingu frá Manchester United.






