Wenger ánægður með Henry

Arsene Wenger. stækka

Arsene Wenger. Reuters

Arsene Wenger hrósaði goðsögninni Thierry Henry eftir sigur Arsenal gegn Sunderland á Leikvangi ljóssins í gær. Henry kom inná sem varamaður í síðari hálfleik og skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

Þetta var síðasti deildarleikur Henrys með Arsenal en hann snýr aftur til New York Red Bulls í lok vikunnar. Henry hefur skorað þrjú mörk frá því hann kom til síns gamla félags að láni.

,,Ég vona að Henry skori fyrir okkur í Meistaradeildinni á miðvikudaginn en hann tryggði okkur þennan sigur í mjög erfiðum leik. Hann hefur svo sannarlega skilað góðu framlagi til liðsins eins og ég vissi að hann mundi gera þegar ég fékk hann að láni. Ég reyndi að fá lánssamninginn framlengdan en það gekk ekki,“ sagði Wenger en með sigrinum komst Arsenal upp að hlið Chelsea í 4.-5. sæti deildarinnar.

,,Fyrir tveimur vikum voru allir búnir að afskrifa okkur í baráttunni um Meistaradeildarsæti en nú erum við komnir í hana og erum ánægðir með það. En það er hörð keppni fram undan því Newcastle, Chelsea, Liverpool og við erum öll að slást um Meistaradeildarsætið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is