Allt eins víst að Suárez verði seldur í sumar
Framtíð Úrúgvæans Luis Suárez hjá Liverpool er í mikilli óvissu eftir að forráðamenn Liverpool upplýstu í gær að leikmaðurinn hefði sagt félaginu ósatt.
Hann hafði sagst ætla að taka í hönd Patrice Evra fyrir leikinn gegn Manchester United á Old Trafford á laugardaginn en gerði það ekki og í kjölfarið logaði fótboltaheimurinn þar sem Úrúgvæinn var harðlega gagnrýndur.
Liverpool-menn eru margir hverjir búnir að missa þolinmæðina gagnvart Suárez og vilja að hann verði seldur í sumar þar sem hann hafi sett ljótan blett á félagið með framkomu sinni.
Það var dauf stemning í herbúðum Liverpool á Anfield í gær en það sendi frá sér þrjár yfirlýsingar í gær og ein þeirra var afsökunarbeiðni frá Suárez.
Suárez, sem er 25 ára gamall, gekk í raðir Liverpool frá hollenska liðinu Ajax í janúar á síðasta ári og skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2015.






