Tévez mætir til Manchester á morgun

Carlos Tévez. stækka

Carlos Tévez. Reuters

Argentínumaðurinn Carlos Tévez er væntanlegur til Manchesterborgar á morgun. Hann mun mæta á æfingasvæði Manchester City fyrir hádegi þar sem kannað verður líkamlegt ástand hans en Roberto Mancini knattspyrnustjóri liðsins sagði um helgina að Tévez gæti leikið með liðinu það sem eftir lifir tímabilsins.

Tévez hefur ekkert leikið með City-liðinu frá því í september eftir að hann lenti upp á kant við Mancini í kjölfar þess að leikmaðurinn neitaði að fara inn á í leik á móti Bayern München í Meistaradeildinni.

„Carlos vill koma til baka og spila fótbolta á ný. Roberto Mancini er tilbúinn að taka hann inn í liðið að nýju og nú þarf Tévez bara að komast í gott form,“ sagði Paul McCarthy umboðsmaður Argentínumannsins við Sky Sports.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is