Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 13.2.2012
| 11:00
| Uppfært
14.2.2012
22:08
Úlfarnir búnir að reka McCarthy
Mick McCarthy. Reuters
Það fór eins og marga grunaði en stjórn enska úrvalsdeildarliðsins Wolves rak í morgun Mick McCarthy úr starfi knattspyrnustjóra. Úlfarnir steinlágu á heimavelli í gær fyrir grönnum sínum í WBA, 5:1, og það reyndist banabiti McCarthys.
Wolves hafa aðeins náð að innbyrða 14 stig í síðustu 22 leikjum í deildinni en liðið hóf tímabilið vel. Það situr í 18. sæti deildarinnar með 21 stig en fyrir neðan eru Bolton með 20 og Wigan 19.
Terry Connur mun stýra liði Úlfanna tímabundið en sem kunnugt er leikur Eskfirðingurinn Eggert Gunnþór Jónsson með liðinu.
McCarthy tók við stjórastarfinu hjá Wolves í júlí 2006 og undir hans stjórn vann liðið B-deildina tímabilið 2008-09.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






