Gerrard: Carroll var bestur

Andy Carroll virðist vera með boltann límdan á höfuðið í baráttu við varnarmenn Brighton. stækka

Andy Carroll virðist vera með boltann límdan á höfuðið í baráttu við varnarmenn Brighton. AP

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, hrósaði  framherjanum Andy Carroll sérstaklega fyrir framlag hans í 6:1-sigrinum á Brighton í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag.

Carroll skoraði eitt mark og lagði annað upp fyrir Luis Suárez en þeir tveir og Steven Gerrard voru allir í byrjunarliðinu sem hefur sjaldan gerst í vetur.

„Carroll hefur sýnt stöðugar framfarir á æfingum og hann var maður leiksins í dag. Við erum sannfærðir um að eftir því sem við spilum meira samn, því betra verður liðið. Við erum allir góðir fótboltamenn - sem njóta þess að spila með öðrum góðum fótboltamönnum, og núna eru allir komnir á sömu bylgjulengd,“ sagði Gerrard við ESPN.

„Það er alltaf mikilvægast að vinna, og síðan að vinna sannfærandi. Við urðum betri og betri eftir því sem leið á leikinn og mörkin voru verðskulduð. Aðalmálið var þó sú einbeiting sem við náðum í þennan leik. Menn voru með úrslitaleikinn í deildabikarnum um næstu helgi ofarlega í huga, en við viljum líka komast á Wembley í þessum bikar svo þetta var jafnmikilvægt,“ sagði Gerrard.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is