Stórsigur Liverpool á Brighton

Steven Gerrard og Martin Skrtel fagna eftir að Skrtel skoraði fyrsta mark leiksins í dag. stækka

Steven Gerrard og Martin Skrtel fagna eftir að Skrtel skoraði fyrsta mark leiksins í dag. AP

Liverpool vann stórsigur á Brighton, 6:1, í lokaleik helgarinnar í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu, á Anfield. Liverpool mætir því Stoke City í átta liða úrslitum keppninnar eftir mánuð.

Leikmenn Brighton skoruðu hvorki meira né minna en þrjú sjálfsmörk. Martin Skrtel, Andy Carroll og Luis Suárez gerðu eitt mark hver en Kazenga LuaLua gerði mark Brighton og jafnaði þá 1:1 snemma leiks.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

85. MARK - 6:1. Markaveislan heldur áfram. Luis Enrique kemst að endamörkum vinstra megin og sendir fyrir markið. Hægra megin skallar Andy Carroll boltann innað markinu þar sem Luis Suárez bætir fyrir vítaspyrnuna og skorar með skalla.

81. VÍTI - Liverpool fær vítaspyrnu þegar Dirk Kuyt er felldur en Peter Brezovan í marki Brighton ver frá Luis Suárez.

74. MARK - 5:1. Þið ráðið hvort þið trúið því eða ekki en Lewis Dunk var að skora þriðja sjálfsmark Brighton! Luis Suárez á skot sem er varið, boltinn hrekkur til Dunk sem er á markteignum, tekur boltann á bringuna, ætlar síðan að taka hann á lærið, en þá hrekkur boltinn í hnéð á honum, og of langt frá honum, þannig að Dunk nær ekki að koma boltanum í burtu áður en hann fer yfir marklínuna. Ótrúlegt!

71. MARK - 4:1. Liverpool er búið að gera útum þetta og varnarmaðurinn Liam Bridcutt skorar sitt annað sjálfsmark! Steven Gerrard á skot sem markvörðurinn ver, en hann fylgir eftir, nánast á endalínu og setur boltann í lærið á Bridcutt og inn!

57. MARK - 3:1. Liverpool er komið í þægilegri stöðu. Stewart Downing leikur upp vinstra megin og sendir svo boltann út að vítapunktinum á Andy Carroll sem afgreiðir boltann í netið með föstu  vinstrifótarskoti.

45. Hálfleikur á Anfield og Liverpool náði undirtökunum í tæka tíð fyrir leikhléð.

44. MARK - 2:1. Liverpool kemst yfir á ný en eftir mikinn atgang í vítateig Brighton skallar Glen Johnson að marki. Varnarmaður bjargar á línu en boltinn fer af samherja hans í netið. Sjálfsmark.

17. MARK - 1:1. Brighton er ekki lengi að jafna. Kazenga LuaLua skorar með hörkuskoti eftir aukaspyrnu af rúmlega 20 metra færi. Boltanum ýtt  til hans og hann þrumar í gegnum vegginn, með jörðinni, í markhornið niðri vinstra megin.

5. MARK - 1:0. Óskabyrjun hjá Liverpool því Martin Skrtel skorar með hörkuskalla eftir hornspyrnu frá Steven Gerrard.

Brighton hefur aldrei tapað bikarleik á Anfield, í þremur heimsóknum. Brighton vann þar sigur 1983 og gerði jafntefli 1908 og 1991. Brighton er í 9. sæti B-deildar en Liverpool í sjöunda sæti úrvalsdeildar.

Sigurliðið í dag mætir Stoke City í 8-liða úrslitunum en dregið var til þeirra rétt áðan.

Liverpool: Reina, Johnson, Carragher, Skrtel, Jose Enrique, Henderson, Gerrard, Adam, Downing, Suarez, Carroll.
Varamenn: Doni, Maxi, Coates, Kuyt, Spearing, Shelvey, Kelly.

Brighton: Brezovan, Calderon, Greer, Dunk, El-Abd, Buckley, Bridcutt, Navarro, LuaLua, Vokes, Barnes.
Varamenn: Ankergren, Noone, Mackail-Smith, Vicente, Harley, Vincelot, Agdestein.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is