Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 20.2.2012
| 16:44
| Uppfært
18:07
Agger og Bellamy með í úrslitaleiknum
Danski miðvörðurinn Daniel Agger og velski sóknarmaðurinn Craig Bellamy verða báðir klárir í slaginn með Liverpool þegar liðið mætir Cardiff í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu á Wembley á sunnudaginn.
Hvorugur þeirra var með í 6:1-sigri Liverpool gegn Brighton í ensku bikarkeppninni í gær en Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, tjáði fréttamönnum í dag að þeir Agger og Bellamy yrðu báðir leikfærir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






