Bellamy spilar með Walesbúum
Craig Bellamy, sóknarmaður Liverpool, hefur verið valinn í velska landsliðið í knattspyrnu sem mætir Kosta Ríka í minningarleik um Gary Speed miðvikudaginn 29. febrúar.
Bellamy, sem er 32 ára og var fyrirliði Walesbúa til skamms tíma, hefur ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort hann gefi kost á sér í landsliðið áfram en hann er tilbúinn í þennan leik til að heiðra minningu Speeds sem lést í nóvember, 43 ára gamall, og var landsliðsþjálfari Walesbúa.
Chris Coleman stýrir velska liðinu í fyrsta skipti en ætlar þó að halda sig til hlés í þessum leik og láta aðstoðarmenn Speeds, Osian Roberts og Raymond Verheijen, um liðsstjórnina í leiknum.
Velski hópurinn er þannig skipaður:
Wayne Hennessey, Boaz Myhill, Lewis Price, Darcy Blake, James Collins, Danny Gabbidon, Chris Gunter, Adam Matthews, Sam Ricketts ,Neil Taylor, Ashley Williams, Joe Allen, Gareth Bale, Jack Collison, Andrew Crofts, David Edwards, Joe Ledley, Aaron Ramsey, Hal Robson-Kanu, David Vaughan, Craig Bellamy, Robert Earnshaw, Steve Morison, Sam Vokes.






