Ferguson reiknar með framtíðarstarfi
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United sem varð sjötugur á gamlársdag, kveðst reikna með því að hans bíði önnur staða hjá félaginu þegar hann að lokum hættir að stjórna liðinu.
Ferguson sagði í viðtali við BBC að hann byggist við því að stjórna Manchester United í tvö til þrjú ár í viðbót. „Ég verð áfram virkur og tel að það verði starf fyrir mig hjá United eftir að ég hætti með liðið," sagði Ferguson en þar er hann með í huga starf svipað og Bobby Charlton gegnir sem nokkurs konar sendiherra félagsins.
„Ég held að allir vilji hætta sem sigurvegarar og vonandi gengur það upp. Ég veit ekki hve lengi ég endist en ef heilsan verður áfram góð eiga tvö til þrjú ár til viðbótar í þessu starfi ekki að valda mér skaða," sagði Ferguson í viðtalinu.
Þar kom líka fram að eiginkona hans væri mjög áhugasöm um að hann viðhéldi fullri starfsorku og hefði meira að segja stungið upp á því að hann færi að keyra út mjólk þegar ferlinum lyki sem knattspyrnustjóri Manchester United.






