Ferguson sér eftir Joe Hart

Joe Hart, markvörður Manchester City og enska landsliðsins. stækka

Joe Hart, markvörður Manchester City og enska landsliðsins. Reuters

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að það hafi verið mistök hjá sér að kaupa ekki markvörðinn Joe Hart fyrir lítið fé þegar það stóð honum til boða fyrir sex árum.

Hart, sem er 24 ára gamall, á nú góðu gengi að fagna sem markvörður Manchester City og enska landsliðsins en City keypti hann af Shrewsbury árið 2006 fyrir 600 þúsund pund.

„Ég hefði getað keypt Joe Hart fyrir 100 þúsund pund, þannig að allir gerum við mistök. Ég er sannfærður um að hann verður markvörður enska landsliðsins næstu tíu árin. Ef við horfum á enska markverði undanfarin 20 ár þá er hann tvímælalaust sá besti,"  sagði Ferguson um markvörð nágrannanna í Manchester City í viðtali við BBC.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is