Giggs: Góð blanda af reynslu og hungri
Ryan Giggs vonast til þess að reynsla Manchester United í titilbaráttu til margra ára verði þung á metunum í vor en það stefnir í harðan slag Manchester-liðanna, City og United, um titilinn ár og þá er alls ekki hægt að útiloka Tottenham í þeirri baráttu.
Manchester City hefur tveggja stiga forskot á ríkjandi Englandsmeistara Manchester United þegar 13 umferðir eru eftir en Giggs stefnir á að vinna sinn 23. Englandsmeistaratitil.
„Ég held að flestir telji City sigurstranglegra því það er í toppsætinu, í liðinu eru margir gæðaleikmenn og það hefur spilað góðan fótbolta. Það er ekki hægt að hunsa þau gæði sem eru í leikmannahópnum, breiddina og það fjármagn sem félagið hefur yfir að ráða,“ segir Giggs á vef Manchester United.
„Það er mikil reynsla í liði City og í liðinu eru leikmenn sem hafa unnið titla. En sú reynsla er líka fyrir hendi hjá okkur og það er góð blanda hjá okkur af reynslu og hungri. Ég held að reynslan af því að hafa unnið titilinn oft áður gæti ráðið úrslitum. Við erum með eldri leikmenn sem hafa unnið titilinn og yngri leikmenn sem hafa það ekki og þá langar til að vinna titla,“ segir Giggs.






