Grayson tekinn við Huddersfield

Simon Grayson. stækka

Simon Grayson. Reuters

Simon Grayson, sem nýlega var leystur frá störfum sem knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Leeds United, var ekki lengi atvinnulaus því undir kvöld var hann ráðinn stjóri enska C-deildarliðsins Huddersfield.

Grayson skrifaði undir samning sem gildir til 2015 og tekur hann við starfi Lees Clarks sem var rekinn frá félaginu um miðjan þennan mánuð.

Huddersfield er í fjórða sæti C-deildarinnar en Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er á mála hjá liðinu. Hann hefur lítið sem ekkert komið við sögu með því á leiktíðinni en hann flytur heim til Íslands í sumar og mun spila með Skagamönnum í Pepsi-deildinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is