Meiðslavandræði hjá Tottenham

Gareth Bale í baráttu við Joel Byrom, leikmann Stevenage, í bikarleiknum í gær. stækka

Gareth Bale í baráttu við Joel Byrom, leikmann Stevenage, í bikarleiknum í gær. AP

Fimm leikmenn sem misstu af bikarleik Tottenham gegn Stevenage í gær eiga allir á hættu að missa líka af stórleiknum gegn nágrönnunum í Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Emmanuel Adebayor, Rafael van der Vaart, Sandro og Benoit Assou-Ekotto misstu allir af leiknum vegna meiðsla og Luka Modric vegna veikinda og Harry Redknapp knattspyrnustjóri sagði við Sky Sports að tvísýnt væri með þá alla fyrir viðureignina gegn Arsenal.

Þó væru mestar líkur á að Assou-Ekotto yrði leikfær. „Hann fór í smá aðgerð í byrjun síðustu viku og var því ekki klár í þennan leik. Hann ætti að ná sér í tæka tíð en við verðm að sjá til með Adebayor sem meiddist á hné á föstudagsmorguninn. Luka var með ótrúlega háan hita og var fárveikur. Ledley King var á bekknum en var ekki leikfær," sagði Redknapp um ástandið á sínum mönnum.

Tottenham gerði aðeins markalaust jafntefli við Stevenage og þarf að leika aftur gegn C-deildarliðinu. Sigurliðið í þeirri  viðureign fær heimaleik gegn Bolton í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is