Quinn kveður Sunderland
Niall Quinn, fyrrverandi sóknarmaður Sunderland, Manchester City, Arsenal og írska landsliðsins í knattspyrnu, hefur yfirgefið Sunderland eftir að hafa starfað þar í níu ár eftir að hann lagði skóna á hilluna sjálfur árið 2003.
Quinn starfaði við þjálfun hjá félaginu fyrst eftir að hann hætti að spila en gerðist síðan stjórnarformaður þess árið 2006. Hann dró sig í hlé frá því í október og tók að sér að byggja upp ímynd Sunderland utan landsteinanna en hefur nú ákveðið að segja skilið við félagið og flytja með fjölskyldu sína heim til Írlands.
„Þetta hafa verið ótrúleg sex ár og ég er gífurlega stoltur yfir því hvar Sunderland er statt í dag. Sunderland er gífurlega heppið með einstakt mannval í röðum stjórnenda, það er ótrúleg orka í öllum í kringum félagið og það er allt til staðar fyrir Sunderland til að gera sig virkilega gildandi í fótboltanum - sem var alltaf mitt markmið,“ sagði Quinn í viðtali á vef félagsins.
„Fyrir fótboltann í félaginu var það hápunkturinn að fá Martin O'Neill til starfa sem knattspyrnustjóra. Þar höfum við fengið mann sem gjörþekkir svæðið, félagið og hin óvenjulegu tengsl þess við stuðningsmenn sína. Ég er sannfærður um að hann mun nýta þá mögnuðu ástríðu sem hér er til staðar og flytja félagið á nýtt þrep," sagði Quinn ennfremur.
Quinn er 45 ára gamall og lék með Arsenal í sjö ár, Manchester City í sex ár og síðan með Sunderland síðustu sjö árin á ferlinum. Samtals skoraði hann 141 mark í 474 deildalelikjum fyrir þessi þrjú félög. Hann lék 92 landsleiki fyrir Írland og skoraði 21 mark.
Kannski minnast margir hans sérstaklega frá þeim tíma þegar enski fótboltinn var sýndur á RÚV vegna þess að Bjarni Fel. kallaði hann aldrei annað en Njál Quinn!






