Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 20.2.2012
| 15:34
| Uppfært
18:10
Stoke áfrýjar brottvísun Delaps
Stoke City hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Rory Delap fékk í bikarleik liðsins gegn Crawley Town í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu í gær.
Delap fékk rauða spjaldið eftir aðeins 18 mínútna leik fyrir að tækla leikmann D-deildarliðsins hressilega, með takkana á lofti. Tony Pulis knattspyrnustjóri Stoke mótmælti ákvörðun Mike Jones dómara harðlega og fór ófögrum orðum um frammistöðu þeirra eftir leikinn, sem Stoke náði þó að vinna, 2:0.
Delap á yfir höfði sér þriggja leikja bann og yrði ekki með gegn Swansea, Norwich og Chelsea í úrvalsdeildinni.
Stoke áfrýjaði svipuðu atviki á dögunum en þá fékk Robert Huth brottvísun og þriggja leikja bann vegna tæklingar. Þeirri áfrýjun var vísað frá.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






