Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 20.2.2012
| 20:02
| Uppfært
21:01
Terry og Cole æfðu með Chelsea í kvöld
John Terry og Ashley Cole æfðu báðir með Chelsea-liðinu í kvöld á San Paolo-vellinum í Napolí en Chelsea mætir Napolí í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði við fréttamenn í kvöld að Terry væri mjög tæpur en hann er bjartsýnni fyrir hönd Coles. Báðir hafa ensku landsliðsmennirnir glímt við meiðsli, Terry í hné en Cole í kálfa.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






