Torres ekki skorað í fjóra mánuði

Fernando Torres í leiknum gegn Birmingham á laugardaginn þar sem hann var tekinn útaf í ... stækka

Fernando Torres í leiknum gegn Birmingham á laugardaginn þar sem hann var tekinn útaf í hálfleik. AP

Fernando Torres framherji Chelsea og spænska landsliðsins í knattspyrnu er gjörsamlega heillum horfinn en fjórir mánuðir eru nú liðnir frá því hann fann netmöskvana síðast.

Torres skoraði síðast í 5:0-sigri Chelsea á móti Genk í Meistaradeildinni þann 19. október en síðan þá hefur hann spilað 22 leiki án þess að skora, 20 með Chelsea og tvo með spænska landsliðinu.

Chelsea pungaði út hvorki meira né minna en 50 milljónum punda, 9,8 milljörðum íslenskra króna, fyrir Torres þegar það fékk hann frá Liverpool í janúar á síðasta ári. Hann hefur komið við sögu í 34 leikjum með Chelsea í úrvalsdeildinni og aðeins skorað þrjú mörk fyrir Lundúnaliðið.

Til samanburðar hefur Thomas Vermaelen miðvörður Arsenal skorað þrjú mörk í 16 deildarleikjum og miðvörðurinn John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur skorað fjögur mörk í 22 deildarleikjum.

Chelsea mætir Napoli í Meistaradeildinni í vikunni og má fastlega reikna með að Torres verði settur á bekkinn og þeir Didier Drogba og Daniel Sturridge verði í fremstu víglínu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is