Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 20.2.2012
| 22:47
Wolves með Poyet í sigtinu
Wolves hefur óskað eftir því við Brighton að fá að ræða við knattspyrnustjórann Gus Poyet en Úlfarnir leita að eftirmanni Micks McCarthys sem var rekinn frá störfum í síðustu viku. Sky Sports greindi frá þessu í kvöld.
Poyet hefur verið við stjórnvölinn hjá Brighton síðan í nóvember 2009 og undir hans stjórn vann liðið sér sæti í ensku B-deildinni. Brighton er sem stendur í 9. sæti deildarinnar en liðið féll úr leik í ensku bikarkeppninni í gær eftir 6:1-tap á móti Liverpool á Anfield.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






