Bellamy: Mun ekki missa svefn ef við töpum
Craig Bellamy leikmaður Liverpool segist ekki missa svefn yfir því ef Liverpool tapar fyrir Cardiff í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu en liðin mætast á Wembley á sunnudaginn.
Bellamy, sem er 32 ára gamall, hefur aldrei unnið titil á Englandi fyrir utan Samfélagsskjöldinn. Hann varð bikarmeistari með Celtic í Skotlandi árið 2005 en hann segir að verðlaun hafi litla þýðingu fyrir sig.
„Ef ég vinn þá vinn ég en ef ekki þá mun ég ekki missa sekúndu af svefni yfir því,“ segir Walesverjinn sem gekk í raðir Liverpool fyrir tímabilið.
„Ég hef átt frábæran feril og hef notið hans en ég hef ekki verið að hugsa um titla. Ég veit ekki einu sinni hvaða ár ég vann bikarinn með Celtic. Ég reyni að vinna alla leiki sem ég spila og ég mun halda áfram að nálgast leikinn á þann hátt.“






