Carroll: Allt að smella
Andy Carroll, sóknarmaður enska knattspyrnuliðsins Liverpool, segist vera hæstánægður með gang mála hjá sér og liðinu þessa dagana, enda sé hann nú loksins að ná sér fyllilega á strik á Anfield.
Liverpool keypti Carroll af Newcastle fyrir metfé í lok janúar 2011 og hann hefur átt erfitt uppdráttar allar götur síðan. Nú hefur hann gert tvö mörk í síðustu fjórum, þrjú eftir áramótin, og þar með sex á tímabilinu í heild.
„Mér finnst þetta ganga vel. Nú er ég farinn að skora mörk og ná mér á strik í leikjunum. Ég held að þetta sé allt að smella. Ég er með meiri yfirferð á vellinum en áður. Ég er ánægður, með meira sjálfstraust og þetta gengur allt betur,“ sagði Carroll við Liverpool Echo.
„Allt liðið lék vel gegn Brighton og það var ánægjulegt að ná að skora,“ sagði Carroll sem kvaðst bíða spenntur eftir úrslitaleik deildabikarsins gegn Cardiff á sunnudaginn kemur.
„Þetta er stórleikur og allir hlakka mikið til hans. Vonandi náum við að vinna. Ég hef aldrei farið á bikarúrslitaleik. Um það snýst tilhlökkunin - að vera þarna. Það er frábær tilfinning. Við erum með öflugan hóp og allir eru tilbúnir til að leika sitt hlutverk. Breiddin er svo mikið að það er hægt að velja hvern sem er,“ sagði Andy Carroll.






