Drogba: Við erum ábyrgir

Didier Drogba er mættur í slaginn eftir Afríkukeppnina. stækka

Didier Drogba er mættur í slaginn eftir Afríkukeppnina. Reuters

Didier Drogba, sóknarmaðurinn reyndi hjá Chelsea, segir að leikmenn liðsins verði að taka ábyrgðina á því að rétta við gengi liðsins, sem sækir Napoli heim í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Knattspyrnustjórinn André Villas-Boas hefur sætt vaxandi gagnrýni undanfarnar vikur vegna köflótts gengis Chelsea og hann þykir orðinn afar valtur í sessi. Framtíð hans, að mati margra enskra sparkspekinga, kann að ráðast af því hvernig fer hjá Chelsea í leikjunum tveimur við Napoli.

„Ég tel að við séum allir ábyrgir fyrir úrslitunum. Chelsea er ábyrgt fyrir úrslitunum og við þurfum allir að sýna okkar besta. Leikmennirnir þurfa að skila sínu. Það besta við fótboltann er að eftir slæm úrslit kemur alltaf næsti leikur þar sem hægt er að svara fyrir sig," sagði Drogba við Independent.

Chelsea hefur aðeins unnið fjóra af síðustu þrettán leikjum sínum og Drogba hefur verið fjarverandi mestallan þann tíma vegna Afríkukeppninnar. Hann segir það ekki skipta höfuðmáli.

„Við vorum í basli við að skora mörk áður en ég fór. Getan er til staðar í liðinu, markaskorararnir eru fyrir hendi. Allir vilja skora mörk. Fyrir mig skiptir mestu máli að skapa marktækifærin. Eftir því sem við fáum fleiri færi, þeim mun meiri líkur eru á að við skorum," sagði Drogba, sem væntanlega leysir Fernando Torres af hólmi í fremstu víglínu hjá Chelsea í kvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is