„Ég leyfi mér smá von“
Hermann Hreiðarsson gengst á morgun undir aðgerð á öxl og líkast til spilar Eyjamaðurinn sterki ekki meira með á tímabilinu. Hermann var lánaður til Coventry frá Portsmouth í síðasta mánuði og í öðrum leik sínum með liðinu, gegn Blackpool, varð hann fyrir meiðslum á síðustu mínútu leiksins.
„Ég lenti ansi illa. Ég skall með olnbogann í grasinu og ef þú hefur séð hvernig Richard Dunne leikmaður Aston Villa meiddist í leiknum á móti Manchester City um daginn þá var þetta nánast alveg eins hjá mér,“ sagði Hermann við Morgunblaðið í gær.
„Að sögn lækna er tímabilið búið hjá mér en ég leyfi mér að halda í smá von. Þetta er auðvitað hundfúlt. Ég var kominn í gott form og byrjaður að spila með nýju liði en því miður varð ég fyrir þessu óhappi.“
Nánar er rætt við Hermann í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun.






