Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 21.2.2012
| 12:45
| Uppfært
13:15
Kuszczak lánaður til Watford
Tomasz Kuszczak er farinn til Watford. AP
Manchester United hefur lánað pólska markvörðinn Tomasz Kuszczak til B-deildarliðsins Watford út þetta tímabil en hann hefur engin tækifæri fengið með United í vetur.
Kuszczak er 29 ára gamal og hefur verið í röðum United í hálft sjötta ár en kom þangað frá WBA árið 2006. Hann hefur ekki farið leynt með vilja sinn til að komast burt frá Old Trafford en þar hefur hann sigið niður í fjórða sætið í goggunarröðinni á eftir þeim Anders Lindegaard, David de Gea og Ben Amos.
Samningur hans við United rennur út í vor en Pólverjinn hefur aðeins spilað 32 leiki fyrir félagið í úrvalsdeildinni á þessum tíma.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






