Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 21.2.2012
| 15:25
Rauða spjald Delaps fellt niður
Enska knattspyrnusambandið tilkynnti rétt í þessu að ákveðið hefði verið að fella niður rauða spjaldið sem Rory Delap, leikmaður Stoke City, fékk í bikarleiknum gegn Crawley Town á sunnudaginn.
Delap var rekinn af velli eftir aðeins 18 mínútur fyrir að renna sér í tæklingu gegn leikmanni Crawley, en Stoke tókst þó að knýja fram sigur, 2:0. Félagið áfrýjaði spjaldinu í gær og nú er ljóst að Delap fer ekki í þriggja leikja bann eins og hann átti yfir höfði sér.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






