Terry frá keppni í tvo mánuði?

John Terry. stækka

John Terry. Reuters

John Terry, fyrirliði Chelsea, leikur ekki með liði sínu gegn Napoli í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld og hætta er talin á að hann verði frá keppni í allt að tvo mánuði.

Terry hefur ekki spilað með í síðustu fjórum leikjum en horfur voru á að hann yrði með í Napoli og hann tók þátt í æfingu Chelsea í gær. Enskir fjölmiðlar segja þó að hann hafi greinilega ekki verið fullfrískur.

Daily Mirror segir í dag að Terry hafi vaknað í nótt við mikla verki í hnénu og þá hafi verið ljóst að hann yrði ekki leikfær í kvöld.

Terry varð fyrir meiðslunum 8. janúar þegar hann bjargaði á marklínu með tilþrifum í bikarleik gegn Portsmouth en rakst á aðra markstöngina í leiðinni. Nú er talið að hann þurfi að gangast undir minniháttar aðgerð þegar Chelsea snýr aftur til London eftir leikinn í Napoli í kvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is