Tveggja marka tap Chelsea í Napoli
Chelsea hefur verk að vinna í að komast áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 3:1-tap gegn Napoli í frábærum fótboltaleik sem fram fór í Napoli í Ítalíu í kvöld. Juan Mata kom Chelsea yfir en heimamenn svöruðu með þremur mörkum. Ezequiel Lavezzi skoraði tvö markanna og Edinson Cavani eitt.
90+3 Leiknum er lokið með 3:1-sigri Napoli.
80. Ashley Cole kom svo sannarlega Chelsea-liðinu til bjargar en honum tókst að verja boltann með fótunum á marklínu.
70. Lampard og Essien eru sendir inná fyrir Malouda og Meireles. 50 milljón punda maðurinn Fernando Torres kemur því ekkert við sögu í kvöld.
65. MARK!! Napoli er komið í 3:1. Lavezzi nýtti sér mistök brasilíska miðvarðarins David Luiz og skoraði í autt markið. Hann fékk sendingu frá Cavani sem stal boltanum frá hinum mistæka Luiz og sendi á Ezequiel Lavezzi sem skoraði af miklu öryggi.
55. Lavezzi komst í upplagt færi en hann skaut boltanum vel framhjá. Það er flottar sóknir á báða bóga og leikurinn hefur verið hin besta skemmtun.
45+2 MARK!! Napoli er komið í 2:1. Edinson Cavani fagnar markinu en líklega var það Serbinn Ivanovic sem skallaði boltann í eigið mark.
40. Brasilíumaðurinn Ramires komst í gott færi skömmu eftir mark heimamanna en skot hans fór rétt yfir markið. Raul Meireles fékk gult spjald skömmu síðar og það þýðir að hann verður í banni í seinni leiknum.
38. MARK!! Napoli var að jafna metin. Það var Ezequiel Lavezzi sem skoraði með hnitmiðuðu skoti frá vítateigslínu.
28. MARK!! Chelsea er komið í 1:0 á Ítalíu. Eftir skelfilegt mistök í vörn Napoli barst boltinn til Juan Mata sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði af miklu öryggi. Þetta gæti reynst þýðingarmikið mark.
12. Chelsea þarf að gera breytingu á liði sínu. Jose Bosingwa varð fyrir því óláni að togna og Ashley Cole leysir hann af hólmi. Cole er nýstiginn upp úr meiðslum.
10. Cavani fékk algjört dauðafæri en Petr Cech markvörður Chelsea varði frábærlega og kom í veg fyrir mark frá heimamönnum.
Napoli: De Sanctis, Campagnaro, Cannavaro, Aronica, Maggio, Inler, Gargano, Zuniga, Hamsik, Lavezzi, Cavani. Varamenn: Rosati, Grava, Dossena, Dzemaili, Fernandez, Pandev, Britos.
Chelsea: Cech, Ivanovic, Cahill, Luiz, Bosingwa, Ramires, Meireles, Malouda, Sturridge, Drogba, Mata. Varamenn: Turnbull, Cole, Essien, Lampard, Torres, Mikel, Kalou.






