Van Persie fær ekki að fara í sumar

Robin van Persie er fyrirliði Arsenal og aðal markaskorari. stækka

Robin van Persie er fyrirliði Arsenal og aðal markaskorari. Reuters

Ivan Gazidis, framkvæmdastjóri enska knattspyrnufélagsins Arsenal, hefur búið svo um hnútana að Robin van Persie fari ekki frá félaginu í sumar og leiki þar í það minnsta þar til samningur hans rennur út vorið 2013.

Van Persie hefur ýtt til hliðar öllum umleitunum um samningsviðræður í vetur og sagt að hann ræði þau mál ekki fyrr en að tímabilinu loknu. Talið er fullvíst að hann vilji komast frá félaginu næsta sumar og renni hýru auga til stórliðanna Barcelona og Real Madrid, auk þess sem Manchester City er sagt fylgjast grannt með gangi mála hjá Hollendingnum sem hefur farið á kostum með Arsenal í vetur þrátt fyrir köflótt gengi Lundúnaliðsins.

Netmiðillinn Goal.com hefur eftir heimildarmanni að Gazidis hafi gengið hart fram í málinu innan raða Arsenal. Hann hafi tilkynnt van Persie að hann verði ekki seldur í sumar, hvað sem í boði verði, og frekar verði samningurinn látinn renna út. Þar með verði samningsstaða Hollendingsins orðin önnur og verri, hann verði orðinn þrítugur sumarið 2013 og þá sé hæpið að honum standi til  boða girnilegir langtímasamningar hjá einhverju stórveldanna. Um leið verði staða Arsenal til að gera við hann nýjan samning önnur og betri.

Goal.com segir að van Persie sé sleginn yfir þessari stöðu mála en hann geti ekkert gert. Ekkert lið muni greiða 40 milljónir punda fyrir hann næsta sumar og Arsenal hafi enga þörf fyrir að selja hann fyrir raunhæft verð, sem sé í kringum 20 milljónir punda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is